logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Fréttir eftir árum

Skóflustunga tekin að nýjum skóla í Mosfellsbæ - mikil uppbygging í bænum

07/12/16Skóflustunga tekin að nýjum skóla í Mosfellsbæ - mikil uppbygging í bænum
Fyrsta skóflustunga að nýjum leik- og grunnskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ verður tekin miðvikudaginn 7. desember klukkan 13.00. Skóflustunguna taka væntanlegir nemendur skólans sem stunda nú nám í Brúarlandi. Þeim til halds og trausts verða bæjarfulltrúar í Mosfellsbæ.
Meira ...

Opnun útboðs- Helgafellsskóli nýbygging, jarðvinna fyrir sökklum.

17/11/16Opnun útboðs- Helgafellsskóli nýbygging, jarðvinna fyrir sökklum.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskaði eftir tilboðum í verkið: Helgafellsskóli nýbygging, jarðvinna fyrir sökklum. Í meginatriðum felst verkið í uppúrtekt og jöfnun grunns fyrir væntanlega byggingu, uppúrtekt og fyllingu undir bílastæði, aðkomuveg og íþróttavöll og að setja niður stofnlagnir og brunna á lóð fyrir regnvatn og fráveitu. Tilboð voru opnuð dags. 17.11.2016 kl.11:00 að þeim bjóðendum viðstöddum sem þess óskuðu.
Meira ...

Útboðsauglýsing - Helgafellsskóli nýbygging, jarðvinna fyrir sökklum.

31/10/16Útboðsauglýsing - Helgafellsskóli nýbygging, jarðvinna fyrir sökklum.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Helgafellsskóli nýbygging, jarðvinna fyrir sökklum. Í meginatriðum felst verkið í uppúrtekt og jöfnun grunns fyrir væntanlega byggingu, uppúrtekt og fyllingu undir bílastæði, aðkomuveg og íþróttavöll og að setja niður stofnlagnir og brunna á lóð fyrir regnvatn og fráveitu.
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira