logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Upplýsingar vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS

12/05/23
Að­ild­ar­fé­lög BSRB, þar með talið Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, hafa boð­að verk­föll í næstu viku en samn­inga­við­ræð­ur standa enn yfir. Ef ekki næst að semja fyr­ir lok dags sunnu­dag­inn 14. maí er hluti starfs­fólks Helgafellsskóla á leið í verk­fall.
Upplýsingar hafa verið sendar til foreldra í tölvupósti varðandi áhrifin á hvern árgang fyrir sig.

Verk­fall­ið mun hafa áhrif á starf­semi allra leik­skóla og grunn­skóla í Mos­fells­bæ sem og frí­stunda­selja.
Um er að ræða tíma­bund­ið verk­fall mánu­dag­inn 15. maí sem mun standa fram til kl. 12:00 þriðju­dag­inn 16. maí.
Þá er boð­að til verk­falla í leik­skól­um Mos­fells­bæj­ar frá mið­nætti mánu­dag­inn 22. og þriðju­dag­inn 23. maí 2023 til há­deg­is báða daga. Það sama verð­ur uppi fimmtu­dag­inn 25. maí frá mið­nætti til há­deg­is.
Loks verða að óbreyttu verk­föll í grunn­skól­um og frí­stunda­heim­il­um Mos­fells­bæj­ar frá mið­nætti til há­deg­is þann 23. maí og jafn­framt frá mið­nætti til mið­nætt­is mið­viku­dag­inn 24. maí.
Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með fréttum í fjölmiðlum og á heimasíðu Mos.is
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira