logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið ´22 - ´23

04/03/22

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram á íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2022 fer fram frá 7. mars til 25. mars.

Skráning í frístund og mötuneyti 6 ára barna sem og nýrra nemenda vegna skólaársins 2022-2023 verður auglýst sérstaklega síðar.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast á  íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl.

Umsóknir fyrir skólavist utan lögheimilis endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir. Þau sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna íbúagáttarinnar geta snúið sér til þjónustuvers Mosfellsbæjar.

Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira