logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Framkvæmdum við Helgafellsskóla flýtt

26/04/18

Á fundi bæjarráðs þann 12. apríl sl. var samþykkt að heimila bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi við Yrki arkitekta ehf. og VSB Verkfræðistofu ehf. um fullnaðarhönnun 2.-4. áfanga Helgafellsskóla.

Að sögn Haraldar Sverrissonar er bæjarráð með þessari samþykkt að taka stefnumarkandi ákvörðun að halda hraðar áfram með byggingu Helgafellsskóla en gert var ráð fyrir þegar vinna hófst við byggingu skólans. „Sú ákvörðun byggir fyrst og fremst á því að hraði uppbyggingarinnar í Helgafellshverfi er meiri en búist var við í upphafi en fjölgun íbúa Mosfellsbæjar í fyrra var 8,2% og auðvitað sýnu meiri í Helgafellshverfi. Gera má ráð fyrir því að síðust byggingaráfangar Helgafellsskóla verði boðnir út á fyrri hluta árs 2019.“

Sama dag og þessi samþykkt var gerð fór bæjarstjórn og fræðslunefnd í Mosfellsbæjar í kynnisferð í Helgafellsskóla þar sem Jón Ingi Georgsson fyrir hönd Ístaks og Reynir Kristjánsson byggingarstjóri fyrir hönd Verksýn tóku á móti kjörnum fulltrúum. Áður en haldið var í kynnisferðina fór Óskar Gísli Sveinsson deildarstjóri nýframkvæmda hjá umhverfissviði Mosfellsbæjar yfir stöðu framkvæmdanna. Uppsteypu hússins er lokið og er vinna innanhús hafin og er verkið á áætlun. Fyrsti áfangi hússins verður tekinn í notkun um næstu áramót. Gert er ráð að næsti áfangi þar á eftir verði tekinn í notkun haustið 2019.

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira