Fréttasafn
2024
janúar, apríl, maí, ágúst, september.
2023
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
mars, apríl, júlí, ágúst, október.
2017
2016
Útboðsauglýsing - Helgafellsskóli nýbygging, uppsteypa og utanhússfrágangur
17/01/17Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Helgafellsskóli nýbygging, uppsteypa og utanhússfrágangur.
Mosfellsbær vinnur nú að byggingu leik- og grunnskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ, nánar tiltekið við Gerplustræti 14. Ráðgert er að uppbyggingin verði í nokkrum áföngum, 1. áfangi sem nú er unnið að er fyrir yngsta stig grunnskóla og á að taka í notkun haustið 2018. 1. áfanginn er um 4.000 ferm. bygging á tveimur hæðum, þar af nokkur hluti sem verður innréttaður og tekin í notkun á síðari stigum. Fullbúinn skóli verður um 7.300 ferm. Verkið sem nú er boðið út er annar verkhluti 1. áfanga og nefnist uppsteypa og utanhússfrágangur.
Helstu verkþættir eru:
- Uppsteypa, forsteyptar einingar, holplötur og þakeiningar.
- Útigluggar og -hurðir, einangrun og klæðningar.
- Þakfrágangur, niðurföll og grunnlagnir.
Helstu magntölur eru:
- Brúttógólfflötur 4.006 m²
- Steinsteypa 1.200 m³
- Forsteyptar útveggjaeiningar 1.191 m²
- Holplötur 2.900 m²
- Þakeiningar 1.432 m²
- Gluggar og útihurðir 461 m²
- Viðsnúið þak 1.068 m²
- Leiksvæði á þaki með gervigrasi og göngustígum 959 m²
Verkinu er skipt í tvo áfanga:
- Uppsteypu og frágangi glugga skal lokið 1. desember 2017
- Utanhúsfrágangi skal lokið fyrir 1. febrúar 2018
Útboð á innanhúsfrágangi er fyrirhugað í framhaldi þessa verks sem skal lokið 1. júlí 2018
Útboðsgögn á geisladiski verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með þriðjudeginum 17. janúar 2017.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 31. janúar 2017 kl. 11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.