Fréttasafn
2024
janúar, apríl, maí, ágúst, september.
2023
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
mars, apríl, júlí, ágúst, október.
2017
2016
Skóflustunga tekin að nýjum skóla í Mosfellsbæ - mikil uppbygging í bænum
07/12/16Bygging skólans verður stærsta einstaka framkvæmd sveitarfélagsins á næstu misserum. Heildarstærð hússins verður um 7300 fm og áætlaður byggingarkostnaður um 3500 milljónir. Skólinn verður byggður í fjórum áföngum og áætlanir gera ráð fyrir að fyrsti áfangi verði tekin í notkun haustið 2018. Uppbyggingarhraði mun að einhverju leyti taka mið af uppbyggingu hverfisins. Gefin hafa verið út um 400 byggingarleyfi í Helgafellslandi það sem af er ári. Hverfið byggist því upp á miklum hraða um þessar mundir.
Í lok framkvæmdar er gert ráð fyrir að í skólanum verði 600 börn á grunnskólaaldri og 110 börn á leikskólaaldri. Fjöldi starfsmanna verði því um 130.
Yrki arkitektar sjá um hönnun skólans. Einnig hefur verið samið við verktakafyrirtækið Karina ehf um jarðvinnu.
Nánari upplýsingar gefur Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 862 0012.