Foreldrar
Í Helgafellsskóla er lagt upp úr góðu samstarfi við foreldra.
Skipulögð foreldraviðtöl vegna allra nemenda eru tvisvar á ári, einu sinni á haustönn og einu sinni á vorönn. Utan þeirra eru foreldrar hvattir til að senda kennurunum tölvupóst. Ef brýn mál koma upp er hægt að hringja í skrifstofu skólans.
Foreldrafélagið heldur aðalfund einu sinni á ári og eru fundargerðir birtar á síðunni sem og lög félagsins.
Hver bekkjardeild á fulltrúa sem eru tengiliðir umsjónakennarans (skólans) við foreldra barnanna í viðkomandi deild.
Tímabundið leyfi
Foreldrar þurfa að fylla út umsókn á Mínum síðum Mosfellsbæjar ef nemendur þurfa leyfi í meira en einn skóladag.
- Umsókn foreldris um tímabundið leyfi nemanda
Nauðsynlegt er að upplýsa umsjónarkennara um leyfið með fyrirvara.