logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Fréttasafn

Starfsdagur í leik- og grunnskóladeild 26. apríl

22.04.2024
Föstudaginn 26. apríl verður starfsdagur í öllum deildum Helgafellsskóla. Starfsfólk skólans vinnur að undirbúningi starfsins og sækir námskeiði. Leik- og grunnskóladeildirnar eru því lokaðar og einnig frístund.
Meira ...

Foreldraviðtalsdagur 7. febrúar

31.01.2024
Miðvikudaginn 7. febrúar er foreldraviðtalsdagur í Helgafellsskóla. Umsjónarkennarar munu senda frekari útfærslu dagsins til foreldra. Öll kennsla fellur niður þennan dag en frístund er opin frá 13.10 - 16.30.
Meira ...

Jóla- og nýárskveðja

20.12.2023Jóla- og nýárskveðja
Starfsfólk Helgafellsskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Leikskóladeildin opnar aftur 3. janúar en grunnskóladeildin 4. janúar og mæta nemendur þá samkvæmt stundaskrá.
Meira ...

Breytingar á gjaldskrám leik- og grunnskóla frá 1. janúar 2024

20.12.2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar ákvað á fundi sínum þann 6. desember s.l. að gjaldskrár leik- og grunnskóla hækki um 7,5% frá og með 1. janúar 2024 Nýjar gjaldskrár koma inn á heimasíðu Mosfellsbæjar á næstu dögum, www.mos.is
Meira ...

Nemendastýrð foreldraviðtöl mánudaginn 6. nóvember

02.11.2023
Mánudaginn 6. nóvember verða nemendastýrð foreldraviðtöl í Helgafellsskóla og kennsla fellur niður þann dag. Frístund er opin frá 13.10 - 16.30 fyrir nemendur sem þar eru skráðir.
Meira ...

Starfsdagur í leik- og grunnskóladeild 28. september

25.09.2023
Fimmtudaginn 28. september er starfsdagur í Helgafellsskóla. Þann dag koma nemendur ekki í skólann. Starfsdagurinn er í leik- og grunnskóladeild og auk þess í frístund. Starfsfólk skólans vinnur að skipulagi skólastarfsins og sækir námskeið.
Meira ...

Skólasetning mið- og unglingastigs miðvikudaginn 23. ágúst

18.08.2023
Skólasetningar 5. - 10. bekkjar verða miðvikudaginn 23. ágúst - Nemendur miðstigs mæta kl. 10 - Nemendur unglingastigs mæta kl. 11 Foreldrar eru velkomnir með á skólasetninguna. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrám fimmtudaginn 24. ágúst.
Meira ...

Skólasetning 1. - 4. bekkjar föstudaginn 18. ágúst

15.08.2023
Skólasetning 1. - 4. bekkjar verður í Helgafellsskóla föstudaginn 18. ágúst kl. 13. Foreldrar eru velkomnir.
Meira ...

Skólaslit 5. - 9. bekkjar

02.06.2023
Skólaslit 5. - 9. bekkjar verða miðvikudaginn 7. júní kl. 10. Nemendur mæta á sal í stutta athöfn. Að athöfn lokinni fara nemendur í stofu til umsjónarkennara, fá afhentan vitnisburð og kveðja kennarana sína. Nemendur fara heim að þessu loknu.
Meira ...

Upplýsingar vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS

12.05.2023
Að­ild­ar­fé­lög BSRB, þar með talið Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, hafa boð­að verk­föll í næstu viku en samn­inga­við­ræð­ur standa enn yfir. Ef ekki næst að semja fyr­ir lok dags sunnu­dag­inn 14. maí er hluti starfs­fólks Helgafellsskóla á leið í verk­fall. Upplýsingar hafa verið sendar til foreldra í tölvupósti varðandi áhrifin á hvern árgang fyrir sig. Verk­fall­ið mun hafa áhrif á starf­semi allra leik­skóla og grunn­skóla í Mos­fells­bæ sem og frí­stunda­selja.
Meira ...

Skipulagsdagur í leik- og grunnskóladeild 21. apríl

17.04.2023
Kæru foreldrar Eins og kemur fram á skóladagatölum Helgafellsskóla er skipulagsdagur 21. apríl. Þann dag vinna starfsmenn að undirbúningi og úrvinnslu starfsins og sækja námskeið. Þennan dag er einnig skipulagsdagur í frístund svo þar er lokað fyrir nemendur þennan dag.
Meira ...

Innritun í leikskóla haustið 2023

02.03.2023
Aðalinnritun vegna úthlutunar leikskólaplássa, sem losna í haust þegar elstu leikskólabörnin byrja í grunnskóla, hefst um miðjan mars og stendur fram í maí. Leikskólaplássum er alltaf úthlutað í kennitöluröð og gilda allar umsóknir fyrir alla leikskóla...
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira