logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Sumarleyfi 2023 á leikskóladeild

17/02/23

Orlofstímabilið í leikskólum Mosfellsbæjar er 15. maí til 31. ágúst.
Velja þarf fyrir hvert barn samfeldar fjórar vikur, þ.e. 20 virka daga samfellt, innan þessa
tímabils. Hægt er að bæta við 5 samfelldum virkum dögum að auki í sumarleyfi og fellur
leikskólagjald niður fyrir þá viku líka.

Sumarskóli 10. júlí til og með 4. ágúst
Á tímabilinu 10. júlí til 4. ágúst er gert ráð fyrir að starfsemi leikskóla Mosfellsbæjar verði
sameinaðir í sumarleikskóla sem verður staðsettur í Hlaðhömrum.
Skráning hefst 20. febrúar og stendur til og með 15. mars.
Þeir sem óska eftir að barnið sé í sumarleikskóla í eina viku eða fleiri á tímabilinu 10. júlí
til og með 4. ágúst og/eða óska eftir fimmtu vikunni, þurfa að fylla út skráningu inni á
þjónustugátt Mosfellsbæjar. Orlofsskráning er bindandi frá þeim tíma.
Vinsamlegast athugið að: Þeir sem hafa í hyggju að barnið verði í sumarleyfi frá 10.
júlí til 4. ágúst þurfa ekki að gera neitt.

Allar frekari upplýsingar veitir leikskólastjóri

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira