logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Skólakynningar

02/09/22

Skólakynningar fyrir foreldra verða 6. og 8. september 2022

-          Þriðjudaginn 6. september kl. 17 – 18 fyrir foreldra nemenda í 1. – 3. bekk

-          Þriðjudaginn 6. september kl. 18 – 19 fyrir foreldra nemenda í 4. – 6. bekk

-          Fimmtudaginn 8. september kl. 17 – 18 fyrir foreldra nemenda i 7. – 9. bekk

Fyrri hluti kynninganna fer fram í hátíðarsal skólans þar sem farið verður yfir helstu áherslur Helgafellsskóla auk þess sem deildarstjóri stoðþjónustu, deildarstjóri frístundar og námsráðgjafi kynna sín störf. Seinni hlutinn verður í  stofum árganganna þar sem umsjónarkennarar fara yfir helstu verkefni hvers árgangsins þennan veturinn.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest og hlökkum til að kynna fyrir ykkur starfið í vetur.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira