logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Mikilvæg skilaboð til foreldra barna í grunnskóladeild

16/03/22

Nýtt mötuneytiskerfi - Ný umsókn

Nýtt kerfi hefur verið tekið í notkun til þess að skrá og halda utan um mötuneytisáskriftir hjá Mosfellsbæ. Kerfið heitir Vala-Skólamatur og er samskonar veflausn og notuð er til þess að halda utan um skráningar í frístund.

Mötuneytisáskriftir hafa í mörgum tilvikum verið opnar í nokkur ár og eru ýmsar upplýsingar í núverandi kerfi úreltar og því ekki æskilegt að færa allar upplýsingar úr gamla kerfinu yfir í það nýja.

Er því óskað eftir því að ALLIR sæki um áskrift að mötuneyti að nýju og færi þar inn réttar upplýsingar um t.d. óþol eða ofnæmi ef það á við, ásamt viðeigandi vottorði.

Sótt er um áskrift í mötuneyti hér,  https://matur.vala.is/umsokn/login

Athugið að áskrift færist svo sjálfkrafa á milli skólaára nema áskrift sé sagt upp.


Foreldrar /forráðamenn barna í Helgafellsskóla eru hvattir til að ljúka skráningu fyrir 25. mars

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira