logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Snjallræði

20/09/21

Í dag hófst nýtt verkefni í Helgafellsskóla sem ber heitið Snjallræði - hönnunarstund. Verkefnið er samþætt yfir allan skólann og allir taka þátt. Mánaðarlega glíma allir nemendur við sömu hönnunaráskorun sem þeir leysa í hópum. Í hverjum mánuði verður einnig valáskorun og einu sinni á önn verður stærri áskorun þar sem nemendur glíma við raunverulegt vandamál. Hér má nefna vandamál eins og plastmengun í hafinu eða matarsóun í mötuneyti. Um er að ræða þróunarverkefni sem hlaut styrk bæði úr Klörusjóði og Sprotasjóði. Verkefnið verður unnið í fyrsta sinn skólaárið 2021-2022. Markmiðið er að kenna nemendum hönnunarhugsun (e. Design thinking) og var þetta fyrsta verkefni einmitt að fara í gegnum ferli hönnunar þar sem nemendur leystu áskorun í leiðinni. Fyrsta verkefnið gekk vonum framar og allir höfðu gaman af. Áhugasamir geta kynnt sér þetta fyrsta verkefni og ferli hönnunar hér: https://bit.ly/3Co8VSG

 

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira