logo
  • Samkennd -
  • Samvinna -
  • Heiðarleiki

Gjaldskrárhækkun frá 1. janúar 2021

14/12/20
 Á 750. fundi bæjarstjórnar þann 27. nóvember 2019 voru samþykktar gjaldskrárhækkanir í tengslum við fjárhagsáætlun 2020. Sumar gjaldskrárnar tóku gildi 1. janúar 2020 og aðrar áttu að taka gildi 1. ágúst 2020. Á 763. fundi bæjarstjórnar þann 10. júní var samþykkt að fresta gildistöku þeirra gjaldskráa sem áttu að taka gildi í ágúst og taka þær því gildi núna 31. desember 2020. 

 Janúaráskrift í mötuneyti hækkar úr 400 krónur máltíðin í 410 krónur, ávaxtabiti úr 115 í 118 og klukkustundin í frístund úr 329 krónum í 337 krónur.

Allar breytingar á áskrift í mötuneyti eða ávaxtabita þurfa að berast ritara skólans fyrir 20. hvers mánaðar og breyting á vistun í frístund er gerð í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
 

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira